What\\\'s up?

ragz&helgz

27.02.2006 15:47:14 / hmfogrgf

Hversu gömul/gamall ert þú í anda???

You Are 24 Years Old

Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.

Hmm... gæti það verið að það hitti akkúrat á réttan aldur... Bíddu.. hvað er ég aftur gömul...? 8|

Kv. Ragz


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 11:27:27 / hmfogrgf

Helgin

Hæ hó..
Ég hef nú ekki mikið að segja frá þessari helgi.. Hún var hin rólegasta.. fór ekki að djamma eða neitt... að vísu gerðum við Marinó okkur glaðan dag og fórum út að borða á föstudaginn á Ruby Tuesdays og það var bara nokkuð gott.. Ég fékk mér að sjálfsögðu pasta með humar og hann fékk sér einhverja sirlon steik og ég held að beljan hafi ennþá verið að baula því hann fékk sþer þetta svo hrátt.. Ég smakkaði bita og ég bara gat varla tuggið þetta.. ekki að þetta hafi verið eitthvað vont en það var bara ekki hægt að rífa þetta hráa kjöt í sundur með tönnunum einum saman..
En einhvernveginn tókst honum það að lokum og mér líka með þennan eina bita og ég borðaði heilan helling af mínum risa skammti af pasta... Það var nokkuð gott, í einhverri hvítri sósu og humar.. Vantaði soldið salt að vísu en ég reddaði því náttúruega..
Og audda fengum við okkur Buffalo wings í forrétt en ég bannaði Manna að panta sterka því ég get ekki borðað solleiðis.. En ég held að honum hafi fundist þeir góðir samt sem áður...
Eftir matinn þá leigðum við videó og tókum A perfect catch held ég að hún heiti og hún var svo allt í lagi.. fín afþreying og góð stelpumynd.. Held að Manna hafi ekki líkað allt of vel þessi mynd en hann lét sig hafa það.. heheh
Laugardagurinn var mjög rólegur hjá mér.. svaf til hádegis og svo fór ég með KEÓ sys á smá bæjarstúss.. þurfti að kaupa soldið í tilefni dagsins.. hehe
Og svo var kvöldið rólegt líka.. Dró Manna og Golla bróir hans í bíó á Casanova... ég skil nú ekki hvernig við náðum að plata Golla með... hehe En myndin var svona la la .. Allt í lagi bara.. fín afþreyjing... Svona típísk svona mynd...
En eftir bíóið kíktum við Manni til KEÓ sys sem var með smá matarboð og ég fékk aftur humar.. mmmm ég elska humar og alla sjávarrétti held ég barasta.. Að vísu finnst mér kolkrabbi ekki góður... ;)
Nú er kominn mánudagur og vikan byrjar náttúrlega á skrópi eins og allar aðrar vikur.. Ég bara næ ekki að vakna þegar ég á að mæta kl 8 í skólann... Skil þetta ekki!!! Ég ákveð að vakna sama hvað áður en ég sofna en svo er bara eins og einhver önnur Ragna er að vakna... Hin illa svefnpurku Ragna... og ég ákveð að sofa lengur.. hugsa það er í lagi... bara einn tími... og sef allavega fram að næsta tíma... ef ekki lengur.. og svo þegar ég vakna þá er ég endanlega pirruð yfir því að hafa sofið lendur... Og pirruð yfir því allan daginn!!! ég veit ekki hver þetta er sem er að vakna á morgnana því það er allavega ekki ég... En þetta gerist ekki bara á mánudögum heldur flestum dögum vikunar og því er ég alltaf endalaust pirruð... Þokkalegt stjórnleysi í gangi hjá mér...
En nú er ég allavega mætt.. og meikaði að sofa bara í gegnum einn tíma... En þegar ég mæti þá blogga ég bara í tímunum... Hvað er í gangi... Jæja.. ég er farin að fylgjast meira með: Náttúrulegt val í þróunarfræði...
Þannig...

Later...
Ragz

P.s. Minni á skoðanakönnunina hér til hliðar.. Við munum sko taka Hauk Lauk, spari bauk í karphúsið!

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 18:30:33 / hmfogrgf

Allir eru lasarusar...

Hæ, hó...

Ég er í góðum gír í heimsókn hjá systrum mínum og er bara hress sem fress.. búin að dæla í mig mínum vímugjafa sem er kaffi og then it's all good...! :haha:

Helga sys er lasin eins og margir ef til vill vita sem lesa hér og ég er að vonast til að smitast ekki... Að vísu verð ég aldrei veik þannig að ég hef ekkert að óttast... Múhahaha

Það er spurning hvað mar gerir í kvöld.. held ég verði svona frekar róleg.. fari kannski á smá röllt í bænum því það er nú Vetrarhátíð í gangi.. svona sýna sig og sjá aðra.. Held mar verði nú að gera það annað slagið svona svo fólk haldi ekki að mar sé dauður eða eitthvað...

Svo var ég að finna eitt merkilegt... Einum manni fannst innleggið mitt um samruma ættartrjáa svo merkilegt að hann setti það sem gullmola inn á síðuna sína... hehehe Fannst það sniðugt.. Þið getið kíkt á þetta hér til hliðar ef þið viljið.. þetta er snilldar blogg og skemtilegar athugasemdir þarna inni... Þetta er inn á linknum Haukur hér til vinstri og er audda gæjinn hennar Helgu sys... Hann er soldið sniðugur.. Með tattú uppá háls, á mótorhjól og 300 fm verkstæði... Hann er húmoristi í meira lagi og bara algjör snilld... Helga! Jú got a gúd von! En svo er eitt við hann.. Hann er búinn að vera að dissa Sex and the city og Nip/Tuck og ég er búin að lýsa yfir stríði á hann! :klikk: Þetta eru sko mun bertri þættir en Top Gear og þættir í þeim dúr... Jakk! við höfum sko ekki áhuga á svoleiðis löguðu... Hvað finnst ykkur?!? Svarið því bara hér til hliðar ef þið hafið áhuga.. og við skulum bara leyfa skoðanakönnunni að tala sitt...

Vote!!

Ragz


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 14:26:02 / hmfogrgf

Lasin heima...

Nú er ég bara fallin, fallin í veikindi. Það hlaut að koma að því þar sem alls kyns fólk í kringum mig var að detta í veikindi. Ég er þó sem betur fer ekki með æluna! Bara beinverkir og hausverkur, nóg er það samt!

Akkúrat þegar mikið er að gerast í vinnunni og verið að tala um miklar breytingar sem eru að fara eiga sér stað núna á næstu dögum, meiri vinna, meiri ábyrgð, meira, meira meira... Þá dett ég í veikindin. Greinilegt að ég þoli álagið vel, daginn eftir ákvörðunina þarf ég að fara heim.

Só, só, só... Ég kveikti á sjónvarpinu í morgun, eftir að Haukur var farinn, og ákvað að kíkja aðeins á Oprah. Þar var einhver sérfræðingur að tala um fuglaflensuna. Hann bar þessa fuglaflensu saman við Spænsku veikina... og 2 milljónir manna munu falla í valinn. "Hvernig ætlum við að taka á þessari ógnun sem er að fara breiða sér út um allan heim?" Það munu allir verða svo veikir að enginn getur hjálpað öðrum, það er bara hver fyrir sig... Ekki nógu margar líkkistur, ekki nógu margar öndunarvélar, ekki nógu margir læknar og hjúkrunarfólk, ekki nógu mörg sjúkrahús, ekki til mótefni, það verða bara fjöldagrafir um allt og so videre og videre...

Ég veit nú ekki alveg, er ég bara svona svakalega ligeglad með þetta allt saman, á minni litlu eyju Íslandi sem er svo vel varinn fyrir öllu utanaðkomandi. Kannski maður ætti að fara gera ráðstafanir, ef þetta skyldi nú koma hingað og hálf þjóðin veik... Ég gat samt ekki hlustað á þetta lengi, hausinn vildi það ekki og ekki líkaminn heldur. Sofnaði mínum sæla svefni í sófanum. Það sem mér þykir þó verst við þetta allt saman er að Oprah var að fjalla um þetta í sínum þætti, nú eru allar húsmæður Bandaríkjanna í góðum ótta við fuglaflensuna og þora varla að senda börnin í skólann, skemmtilegt það... Því merkilegt nokk, þá hlusta margar konur á Opruh.

Ég vaknaði svo aftur í hádeginu og horfði á Neighbours, það er góð skemmtun. Ég held samt að líkami minn vilji ekki meiri vöku núna og þurfi ég bara fara leggja mig aftur....

Þar til síðar... ZZzzzZzz

helgz


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 10:24:22 / hmfogrgf

Blóðbankinn

Jæja.. Þá er kominn fimmtudagur... Vikan er alltaf rosalega fljót að líða.. og ég held að það hafi líka etv. einhver áhrif að ég er bara í einum tíma fyrir hádegi á fimmtudögum og 2 á föstudögum... Það er bara eins og það sé komin helgi eftir miðvikudaginni... hehehe ég veit að það eru ekki allir jafn heppnir og ég ;)
En í dag er mikið að gera hjá mér samt sem áður.. ég þarf að mæta í þennan tíma (sem ég gerði og er í akkúrat núna), fara á fund varðandi námskynninguna sem verður hér í HÍ næstu helgi og ég er að vinna við, fara í Blóðbankann í atvinnuviðtal (sjáum til hvernig það gengur) og svo í bankann að redda yfirdráttaheimilinni vegna Lín.. Það er alltaf eitthvað vesen með það finnst mér... hmm kannski er það vegna þess að ég er alltaf að hækka heimildina og get ekki borgað til baka nema yfir einhvern tíma.. hehehe
En já.. Ég er búin að vera að sækja um einhver störf fyrir sumarið.. Ég vil endilega gera eitthvað sem að tengist náminu núna.. Þannig að ég sótti um í Blóðbankanum, Rannsóknarstofunni Keldum og fleiri og fleir stöðum... Blóðbankinn hringdi í mig á þriðjudag og bauð mér að koma og auðvitað fer ég að athuga aðstæður... :D
Wish me luck ;)
En semsagt er bissí dagur hjá mér í dag... Allavega fyrripartinn og ég býst bara við að liggja í leti seinnipartinn.. og svo er náttúrlega vikulegt heimboð í kvöld.. Alltaf góður matur þar... mamma hans Manna er sko góður kokkur..
En ég spjalla við ykkur seinna dudes...
Later.. Ragz

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 12:45:43 / hmfogrgf

helgin og meira...

Já, helgin var aldeilis góð.

Ég og Ása brunuðum beint á Akureyri rúmlega 5 á föstudaginn. Það var þokkalegt rok á leiðinni svo við tókum okkur bara tíma og vorum komnar norður um miðnætti. Fórum beinustu leið að sofa og vöknuðum svo snemma á laugardaginn og skelltum okkur út í sólina og upp í Hlíðarfjall. Það var rosalegt veður og hefðum við ekki getað verið heppnari. Stóllinn var þó bilaður og gekk misjafnlega vel að komast upp toglyftuna. Gekk samt vel og erum við á góðri leið með að verða bara atvinnukonur á brettum. Fórum svo í sund og hvíldum lúna vöðva, fórum á Bautann (og fékk ég besta borgara ever), ég keypti mér eitt stykki leðurjakka og kíktum við svo í heimsókn til húsmóðurinnar Ölmu.
Enn og aftur verð ég að skjóta því að hvað ég hef það gott.... "Ég get hvílt mig þegar ég vil" og "Alma, þú bara kallar í mig þegar þetta er yfirstaðið" eru orð sem ég hef látið falla meðan ég hef verið í heimsókn hjá kellu. Enda þvílíkur dugnaður í konunni, með tvö börn, hund og kött. Svo ég tali nú ekki um þrifnaðaráráttu hennar :haha:
Fórum svo á bretti á sunnudeginum líka en fórum um kl.13 þar sem stóllinn bilaði aftur. Ákváðum því að bruna bara fljótt í bæinn, enda hlakkaði ég mikið til að hitta Hauk og fara í grill (ég veit það er febrúar) til Huldu og Guðrúnar.
Ég fékk svo flottasta blómvöndinn og kom að bílnum mínum hreinni heldur en hann hefur nokkurn tímann verið. Haukur þú ert frábær ;)

Í kvöld er svo að byrja ný sería í O.C. og líka C.S.I. (hvað er með skammstafanirnar??) og verður því gott sjónvarpskvöld með Rögnu sys væntanlega þar sem hún er mikill fan eins og ég.

Annars verð ég að kommenta á Kompás í gær. Svaklegur þáttur og fékk ég alveg illt í líkamann á að horfa á þetta. Vonandi að þetta vekji foreldra svo þeir geti talað við börnin sín um þessi mál.  Þeir sem ekki sáu þáttin geta horft á hann hér. Einnig vil ég vekja athygli á þessari síðu. Algjörlega vert málefni!

Annars bara góðar stundir :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 12:12:21 / hmfogrgf

Helgarsagan hennar Rögnu...

Það gerðist margt hjá mér um helgina.. Ég byrjaði föstudaginn á því að mæta örustutt í skólann og var búin fyrir hádegi. Eftir það fór ég til KEÓ sys og þar vorum við að þamba kaffi, reykja og slúðra eins og verstu kellingar.

Svo um 5 leitið lá leiðin í Rannsóknarstofu fiskiðnaðarins. Nei.. ég fer ekki þangað svona ein til að stytta mér stundir en það var vísindaferð í HÍ. Þar var mikið verið að tala um gerla og fleira og eftir það var náttúrulega boðið uppá bjór (helling!), snakk og snittur... MMMM gaman að fara í svona vísindaferðir ;)

Þegar við vorum búin að vera þarna nógu lengi þá lá leiðin inn á Pravda þar sem HÍ er með ýmis tilboð í gangi o solleis og þar sem við erum öll líffræðingar og í góðu formi rölltum við bara yfir í þvílíku roki og við vorum sko ekkert að setja það fyrir okkur...

Við vorum á Pravda til svona 2 en þá var ég orðin uppgefin, enda búin að vera að síðan kl 6, og kallaði á Manna og fór svo bara heim.. Það var gott að fara svona snemma heim.. mar fékk sér bara að borða og svo að lúlla... Svo hefði mar átt að vera dúndur hress daginn eftir ... en það virkaði ekki þannig hjá mér.. ég var ótrúlega löt og hafði ekki orku í neitt... Skil ekkert í þessu... En samt sem áður náði Manni að draga mig út um kvöldið að hitta líffræðinemana aftur (að vísu a fiskilínu en það sleppur :haha:) og spila Trivial... Það var fínt.. ég og Marinó hefðum svo rústað þessu hefðum við ekki verið svona þreytt!!! Ég lofa ykkur því!

En svo var stemning á sunnudagskvöldið.. Ég og Hulda frænka stóðum fyrir grillveislu með öllum frændsystkynunum heima hjá Jónu frænku.. Við fjölmennuðum þar og vorum svona 15 alls að háma í okkur lambi, kjúlla, korni, kartöbblum, sósu, og... og... og... og það var óggislega gott og gaman!! Húsið hennar Jónu frænku er líka snilld! Þar er allt til alls og matarborið er 2ja metra langt og eins metra breitt... þannig að það er sko hægt að troða á það!!!

Eftir þetta lág svo leiðin bara heim um svona 12 leitið... Var orðin soldið lúin þá og aftur kallaði ég á Manna og fór með hann heim.. Ég náði loks að draga hann út þegar hann var búinn að tala nokkra stund um Smallville, Stargate og miklu fleiri álíka þætti við Huldu og Guðrúnu... Gott að þau hafa eitthvað sameiginlegt... heheheh

En nú held ég að þetta sé nóg í bili.. og spjalla bara við ykkur aftur seinna...

Kv. Ragz


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 11:51:23 / hmfogrgf

Skemtilegt, skemtilegt!

Coalescence – Samruni ættartrjáa

ATH mynd 10.1 – ólíkir einstaklingar af mismunandi uppruna og sumir eignast afkvæmi aðrir ekki. Í lokin eiga allir einstaklingar sameiginlegan forföður margar kynslóðir aftur í tímann. Einn ákveðinn einstaklingur er ríkjandi í upphafi! Eftir því sem við rekjum okkur meira aftur tímann því meiri er skyldleikinn.

Ef við tökum allel/einstakling úr kynslóð t (mynd 10.1) og svo annan einstakling (úr kynslóð t), þá eru líkurnar  1/N að þeir eigi sama foreldri.

Líkurnar á að þeir eigi mismunandi foreldri er þá (1 – (1/N))

Ef foreldrarnir eru ekki sá sömu, hverjar eru þá líkurnar að þeir einstaklingar (foreldrar einstaklingana úr kynslóð t) eigi sömu foreldrana?

Svar: 1/N (1-(1/N)) – þetta eru líkurnar á að einstaklingar úr kynslóð t eigi sömu “ömmu og afa”

1/N [1-(1/N)]2-1

en almenn formúla er: 

(1/N) [1-(1/N)]G-1 - ↓N ↑P (~þ.e. líkur á sameiginlegum forfaðir á ákv kynslóð)

 

 

Og hvaða skoðun hafið þið á þessu? Þetta er bara nokk áhugavert...! Eða hvað??

 

Kv. Ragz




» 1 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 17:09:56 / hmfogrgf

Og ekki leið á löngu..

Og audda var ég líka klukkuð... Þannig að hér kemur runan.. 8)

4 störf sem ég hef unnið um ævina

1. Videómarkaðurinn - afgreiðsla
2. Hagkaup - obboðslega gaman

3. Magmiðlun - internet alla daga

4. Og Vodafone - Sala og ráðgjöf ;)

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur

1. Braveheart
2. Moulin Rouge - ást og draumaland
3. Fight Club - Pittarinn mar!
4. Snatch - og Pittarinn aftur

4 staðir sem ég hef búið á

1. Hátröð 7
2. Hátröð 8
3. Anandale - Virginiu - USA
4. Bláslölum

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar við

1. Lost

2. Despó
3. NipTuck
4. OC

4 síður sem ég skoða daglega

1. hi.is
2. hi.is
3. hi.is
4. blog.central.is/ragzoghelgz

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríinu

1. Dunedin FL
2. Krít
3. Köben

4. Kanarí

4 matarkyns sem mér líkar

1. Fiskibollurnar hennar ömmu
2. Fiskibollur í dós :haha:

3. Kebab

4. Lambalundir

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna

1. Upp í sófa með sæng að lúlla!
2. Í sólinni

3. Að knúsa Manna :D
4. Eða bara hér!

4 bloggarar sem ég klukka

1. Krítargellurnar
2. Egil

3. Atla
4. KEÓ

Kv. Ragz


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2006 14:02:40 / hmfogrgf

Brettaferð

Ég sit hér í vinnunni og bíð eftir því að tíminn líði, reyndar líður tíminn rosa hratt þar sem mikið er að gera og kvarta ég ekki yfir því. En þannig er að ég og Ása erum að fara bruna beinustu leið á Akureyri eftir vinnu í dag. Við tökum brettin með okkur og ætlum okkur að vera upp í fjalli bæði laugardag og sunnudag. Færi er gott í Hlíðarfjalli og mikill snjór, þannig að þetta stefnir allt í góða brettahelgi.
Við verðum með þessa fínustu íbúð sem KB-banki reddaði okkur og eigum við víst að geta rennt okkur á brettunum úr fjallinu og alveg upp að útidyrahurðinni. Ekki slæmt það.
Svo er mín kæra vinkona, hún Alma, stödd á Akureyri þessa helgina og ótrúlegt en satt þá verður hún ekki í bænum.Við eigum nú eftir að kíkja í heimsókn til hennar og litlu englanna í einn kaffibolla eða svo.

En það er samt nóg að gera í bænum um helgina, kosningavaka, idol-ið, afmæli og dans meðal annars. En vinir mínir í bænum mega vita það að ég mun hugsa til ykkar meðan ég *sjúbb, sjúbb* og *sviss, sviss* -a niður brekkurnar og læt vindinn leika um hár mér (... or will I?) ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.02.2006 11:59:52 / hmfogrgf

Klukk!

Jæja, ekki er þetta blogg búið að vera lengi uppi þegar ég verð klukkuð!

4 störf sem ég hef unnið um ævina

1. Hlíðarbakarí - afgreiðsla
2. Snælandsvídeó - nammi nammi nammi
3. Endurvinnslan - bókhald vúhú
4. Og Vodafone - þjónustufulltrúi og viðskiptastjóri

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur

1. Moulin Rouge
2. Shawshank Redemption - réttlætið sigrar að lokum
3. A Time to Kill - réttlætið sigrar að lokum
4. Braveheart - barist fyrir frelsinu

       Is there a pattern here?

4 staðir sem ég hef búið á

1. Hátröð 7
2. Hátröð 8
3. Anandale - Virginiu - USA
4. 13 Rue Terme - Lyon - Frakklandi

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar við

1. 24
2. Despó
3. Sex and the City
4. King of Queens

4 síður sem ég skoða daglega

1. mbl.is
2. innranet Og Vodafone
3. theladystardust.blogspot.com
4. baraeg.blogspot.com

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríinu

1. Dunedin FL
2. Krít
3. Búdapest
4. New York

4 matarkyns sem mér líkar

1. Fiskibollurnar hennar ömmu
2. Hrísgrjónagrauturinn líka hennar ömmu
3. Soðin ýsa með kartöflum og smjeri
4. Doritos - hvað annað?

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna

1. Upp í sófa með sæng - svooo kalt úti núna!
2. Inní nýja bílnum mínum (ef ég ætti hann)
3. Í draumaheimi zzzZZzzZ
4. Hjá Kalla í sælgætisgerðinni

4 bloggarar sem ég klukka

1. Vigga gella
2. Dísa skvísa
3. Haukur
4. Ragna sys

Og hana nú!

kv.
helga m


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 14:06:03 / hmfogrgf

Hvað er að gerast??

Já, rétt er það hjá henni Ragnhildi sys... það hlaut að koma að því!

Það er ekki eins og við höfum ekki bloggað áður, nei nei... aldrei verið þekktar fyrir það *hóst* En jú, við ætlum að láta reyna á þetta í sameiningu. Vegum hvor aðra upp í blogginu. Enda er margt skemmtilegt sem drífur á okkar daga... jáhá! og aldrei lognmolla í kringum okkur systurnar... neihei!

Ég byrja nú bara rólega svona í fyrsta bloggi og leyfi ykkur að melta þessar skemmtilegu fréttir. Ég býst nú við að skrá mínar góðu hugrenningar hér á þetta blogg og munum við líklega deila gleði okkar og sorg, jú og jafnvel draumum og þrám. Þannig að þið megið eiga von á miklu, kæru vinur.

Þar til síðar... í bili.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 14:41:19 / hmfogrgf

And then it begun...

Það hlaut að koma að því einhverntímann..
Nú er Ragz og Helgz að stofna blogg..! 8)
Hér munu koma ýmsar frásagnir af okkar daglegu lífi.. Hvað við gerum skemmtilegt, hvað kemur uppá hjá okkur, hverja við hittum og hver veit nema hér komi inn rifrildi einhverntímann.. Hehe
Þetta á bara að vera til gamans gert og ég held að við séum bara aðallega að gera þetta fyrir okkur sjálfur frekar en ykkur hin, svona satt best að segja.. En það er alltaf gaman að fá smá feedback frá öðru fólki..
Jæja, nú þarf ég að fara að læra þroskunarfræði og drífa þennan "#%$&#/#"%#!#"%&/() fyrirlestur af...
Vona að þið hafið það gott í dag!

Kv. Ragz


» 0 hafa sagt sína skoðun


Leitarbox

Klukkan