Nú sitjum við systur hér hlið við hlið í heimsókn hjá móður okkar
og tókum við þá skynsamlegu ákvörðun að taka upp
bloggpennann

Margt hefur nú drifið á daga okkar síðan síðast en þó minna hjá
yngri systurinni þar sem hún býr í afdölum. Það er nú samt hægt að
skoða myndir af því hér. Helst er þó að frétta af sveitapakkinu á
Hólum að betri helmingur yngri systurinnar er orðinn faðir. Já, þið
lásuð rétt. Marinó er orðinn pabbi! Hvað er Ragna þá??? Stjúpa, já,
ef þið viljið segja svo... ha hmmm ha. Hann eignaðist myndarlega
12marka og 51cm stóra stelpu. Þið getið skoðað myndir af nýja
fjölskyldumeðliminum hér. Faðirinn hefur ekki hætt að brosa síðan
litla stúlkan lét sjá sig síðastiðinn þriðjudag.
Eldri systirin er ein í búinu þessa dagana þar sem kallinn hennar
er farinn að tæma Vatnsdalsána. Hann er að nota nýja veiðihjólið
sem hann hannaði og smíðaði og er kallað (óformlega) WTF = Wheel
for Trout Fising. Annars eru þau búin að koma sér vel fyrir í
Hátröðinni, eftir langa bið. Það fer mjög vel um þau skötuhjú þar
og heyrst hefur að parið sé duglegt að baka og sé með vegleg
kaffiboð oft á tíðum. Því er öllum sem er á ferðinni, velkomið að
koma heilsa upp á fólkið.
Við erum ekki alveg tilbúnar að lofa því að við verðum duglegri að
blogga en god help us if we won´t try!
Fleiri fréttir síðar og Maggi frændi biður að heilsa öllum...
ps. Hlynur, við ætlum að reyna að koma í heimsókn sem allra fyrst
og vera eins lengi og við getum. Bara svo þú vitir þá erum við í
fríi í allan ágúst og ekkert hefur verið planað hvað við ætlum að
gera í fríinu. Hver veit nema leið okkar liggi til Hóla. Er ekki
fræg setning sem segir: All roads lead to Hólar???